top of page

Skilmálar

​

1. Almennar upplýsingar

Þessi vefur er rekinn af Annu Hlín, þjálfun slf., kt. 600224-1740.
Netfang: strongruniceland@gmail.com

Með því að kaupa áskrift að þjónustunni samþykkir þú eftirfarandi skilmála.

​

2. Þjónustan

Þjónustan felur í sér aðgang að æfingamyndböndum sem eru aðgengileg á læstum síðum eftir áskriftarleiðum.

​

3. Áskrift og greiðslur

Um er að ræða mánaðarlega áskrift sem endurnýjast sjálfkrafa þar til henni er sagt upp.

Greiðsla er tekin fyrirfram fyrir hvert tímabil.

​

4. Uppsögn

Áskrift skal segja upp með að minnsta kosti 3 daga fyrirvara fyrir næsta gjalddaga.

Uppsögn fer fram í gegnum sérstaka síðu sem verður aðgengileg notendum.

Ef áskrift er ekki sagt upp innan tilskilins frests endurnýjast hún sjálfkrafa fyrir næsta tímabil.

​

5. Endurgreiðslur

Greiðslur eru ekki endurgreiddar, hvorki að hluta né í heild.

​

6. Aðgangur og notkun

Aðgangur er persónulegur og óheimilt er að deila innskráningarupplýsingum eða efni með þriðja aðila.

Brot á þessu getur leitt til lokunar á aðgangi án fyrirvara.

​

7. Breytingar á þjónustu

Rekstraraðili áskilur sér rétt til að breyta efni, verði eða uppbyggingu þjónustunnar án fyrirvara.

​

8. Ábyrgð​

Notkun á æfingum fer fram á eigin ábyrgð.
Notendum er ráðlagt að meta eigið heilsufar áður en æfingar eru framkvæmdar.

​

9. Lög og varnarþing

Um skilmála þessa gilda íslensk lög.

bottom of page