Styrktarþjálfun fyrir hlaupara sem vilja árangur
NÁÐU HÁMARKS ÁRANGRI
✨Æfingar hannaðar af sjúkraþjálfara & hlaupara✨

,,Hugsaði nokkrum sinnum
til þín í hlaupinu því
VÁ skrokkurinn var æði
og þú átt svo mikinn þátt í því.’’
Bakgarðshlaupari
"Verð að segja þér hvað mér finnst þetta geggjað prógram.
Ég finn strax mun í hlaupunum og bara dagsdaglega.
Töfraæfingar!"
HVER ER ANNA HLÍN?

Hæ, ég heiti Anna Hlín og er sjúkraþjálfari og hlaupari. Ég hef starfað sem sjúkraþjálfari síðan 2015 og vinn í Sjúkrasport í Sporthúsinu í Kópavogi.
Ég hef alla tíð haft brennandi áhuga á þjálfun og hreyfingu. Ég hef fjölbreytta reynslu af íþróttum, líkamsrækt og þjálfun, en í dag eiga hlaup hug minn allan. Ég elska útiveru og náttúruna – mér líður best á fjöllum, en malbikið er ágætt inn á milli.
Ég er frekar feimin og læt lítið fyrir mér fara, en þegar ég stend fyrir framan fólk að þjálfa hverfur öll feimni og ástríða mín fyrir starfinu fær að njóta sín. Það er nefnilega skemmtilegasta vinna í heimi að þjálfa og fræða fólk með áhuga og markmið.
Ég er þriggja barna móðir og eiginkona, og flestir dagar eru stútfullir af hversdagsleika og gæðastundum með mínu fólki.
Ég stofnaði StrongRunIceland árið 2023 fyrir fólk eins og mig – hlaupara sem vilja ná árangri, bæta sig og fyrirbyggja meiðsli, en hafa jafnframt nóg að gera í verkefnum lífsins.
Æfingarnar mínar eru stuttar, hnitmiðaðar og sérhannaðar fyrir hlaupara.
HVAÐA ÁSKRIFT HENTAR ÞÉR?
Æfingarnar eru allar settar upp sem myndbandsæfingar þar sem ég leiði þig í gegnum æfinguna frá upphafi til enda.
Sérhæfðar æfingar með þarfir hlaupara í huga.
Þannig náum við hámarksárangri á sama tíma og við lágmörkum tímaeyðslu.
Þú þarft bara að ýta á „play“ og leyfa mér að leiða þig áfram!



PREMIUM - ÁSKRIFT
ALLUR PAKKINN!
✅Kröftugur styrkur fyrir hlaupara
-
Tvær æfingar á viku 35-50 mín hver æfing
-
Samtals 8 vikur - eða 16 æfingar
-
Upphaflega prógramið frá StrongRun sem hefur hjálpað fjölda hlaupara í gegnum tíðina.
✅Aukaefni:
-
Liðkandi æfingar fyrir hlaupara
-
Kvið&mjaðma æfingar fyrir hlaupara
✅Tvær nýjar æfingar í viku - þær sömu og í Basic áskrift
Verð: 12.990 kr á mánuði
Segja þarf upp áskrift 3 dögum fyrir næsta greiðsludag
_edited.jpg)